1. |
Undraland
02:17
|
|||
Komdu með í ferðalag sem kyngimagnað bragð er að.
Komdu ef þú þorir, komdu og þú munt sjá!
Lögmálin og grunnformin og lífsgildin og boðorðin
komin er’í klessu, rugl og hrærigraut - hrokkin eru af sporbraut.
Tíminn hefur stöðvast eða er hann kannski þotinn hjá?
Köttur gufar upp og bollakaka er hrá.
Hví eru allir hræddir hér, útúrstressaðir og smá
klikkaðir í hausnum, mér er bara spurn:
Getur einhver svarað því?
Undraland la-lalla - þetta er Undraland!
Undraland la-lalla - þetta er Undraland!
Undraland la-lalla - þetta er Undraland!
Undraland la-lalla - þetta er Undraland!
|
||||
2. |
Lykladiskó
00:42
|
|||
3. |
Laddidí og Laddidamm
01:28
|
|||
Laddiddidí … og Laddaddídamm.
Laddaddídamm … og Laddiddidí.
Við erum Laddidí og Laddídamm og Laddídammdiddí.
Hann er með mér. Nei, þú ert með mér! Við erum þver- … -sagnir en hver …
... segir að heimurinn sé einfaldur, við afsönnum það hér.
Tuttugu tær. Og fjórar til ... ... uxu í gær. Já, hér um bil.
Við erum lukkupamfílar og okkur gengur allt í vil!
Ég er með hroll ... Ég brenni mig. Ef þú þarft hönd ... ... gríp ég í þig.
Sameinaðir við stöndum, enginn situr einn uppi með sig.
Já, ég skil. Þið hjálpist að og þá gengur allt betur! Bætið hvorn annan upp.
Upp? Eða niður? Já, eða bara út á hlið!
Þvers og kruss! Kvers og hvurs! Ekkert fruss! Ekkert stress! Feitur fress hvað ég er hress!
Laddididí? Nei, Laddaddídamm. Laddaddídamm. Nei, Laddiddidí!
Þið eruð alveg eins svo hvernig get ég áttað mig á því?
Lillilísa. Lillilísa? Ég heiti Lísa. Aha-ha-ha!
Það gleður mig að kynnast ykkur því ég þekki engan hér.
Velkomin Lillillilísa! Takk fyrir, Laddídamm-diddí.
Mikið er þetta orðið formlegt. Er ekki komið nóg af því?
|
||||
4. |
Stef 1
00:26
|
|||
5. |
Lísa, hvað gerir þú nú?
02:45
|
|||
Hvar er ég?
Hver er ég?
Ég veit það ekki – trúðu mér.
Ég minnka
og stækka
alveg ringluð – trúðu mér.
Ég er stödd á skrítnum stað
Allt er á haus, ég bað ekki um það
Þett'er einum of ruglað...
Lísa – hvað gerir þú nú
hvað gerir þú nú, þú þú! (x4) - þú, þú, þú...
Ég er ein á ókunnum stað
allt þvers og kruss, ég bað ekki um það
þett'er einum of ruglað...
Lísa – hvað gerir þú nú
hvað gerir þú nú, þú þú! (x4) - þú, þú, þú...
|
||||
6. |
Stef 2
00:35
|
|||
7. |
Hattaraveislan
03:08
|
|||
Hér er svo gaman
Við erum saman
brosand'í framan
það er svo gaman gaman gaman svona saman
Svaka gaman
svona saman hó hó hó (x2)
Hér er allt svo leiðinlegt
glatað, fúlt og ömurlegt
Veislan er svo þreytandi
Botninn datt úr henni.
Hvað varð um allt gamanið?
Tók það einhver? Voru það við?
Meiriháttar leiðindi
þau lögðust á í skyndi
argasta svartnætti
hræðilegt kviksyndi
gegnumsýrt óyndi...
Hér er svo gaman
Við erum saman
brosand'í framan
það er svo gaman gaman gaman svona saman
hver er svo daman?
Ég heiti Lísa, bon jour
Hér er svo gaman
Við erum saman
brosand'í framan
það er svo gaman gaman gaman svona saman
Svaka gaman
svona saman hó hó hó
Hér er allt svo leiðinlegt
glatað, fúlt og ömurlegt
Veislan er svo þreytandi
Botninn datt úr henni.
Hvað varð um allt gamanið?
Tók það einhver? Voru það við?
Meiriháttar leiðindi
þau lögðust á í skyndi
argasta svartnætti
hræðilegt kviksyndi
gegnumsýrt óyndi...
|
||||
8. |
Hjá kálorminum
04:02
|
|||
Tjilla tjilla tjilla tjilla...
|
||||
9. |
Kanínuhnoðrinn
01:36
|
|||
Ég var kanínuhnoðri
með fima fætur,
ég dansaði um hagann á tásunum.
Dreymdi stóra drauma
um frægð og frama
uppi á sviði í rauðum ballettskóm
En ég komst ei neitt
skuggi féll á líf mitt
og ég var bundinn fast í báða skó.
Ég fæ hnút í magann
Er ég hugsa um það
En enginn getur flúið örlög sín.
MÓÐIR:
Hann pabbi þinn er dáinn. Það var hans hinsta ósk að þú tækir við vasaúrinu.
DEYJANDI FAÐIR:
Það má aldrei láta það stoppa … muna að trekkja á hverjum morgni …. aaaah
Ég varð handhafi tímans
eins og forfeður mínir
en starfinu fylgja viss ákvæði
því ég tilheyri henni, já ég tilheyri henni!
Hjartadrottningin fékk mig í arf. Já, Hjartadrottningin fékk mig í arf…
(stynur) Hjartadrottningin fékk mig í arf…
|
||||
10. |
Hjartadrottningin
02:21
|
|||
Ég er stórkostleg
Svaka greindarleg
Sjáiði minn þokka
yndislegu lokka
Ég er gullfalleg
Djörf og alúðleg
Margslungin, fínleg
Heyrið mína speki
Hér er enginn leki
stórfengleg!
Þetta er satt!
Já heilagur sannleikur!
Hérna ríkir ást og kærleikur!
Já - Hún er Hjartadrottningin (það er ég!)
Okkar eina sanna von (A-ha)
Stendur með okkur í streðinu
vakir yfir oss lon og don.
Nú á hún afmæli
Vinsamleg tilmæli:
Færið henni gjöf sem
gleður – ekki tannkrem!
engin andmæli
Viljiði halda haus
og fá að ganga laus
þessu þarft að hlýða
engu þarft að kvíða
drottningin er skaðlaus.
Það er satt!
Já heilagur sannleikur!
Hérna ríkir ást og kærleikur!
Já - Hún er Hjartadrottningin (það er ég!)
Okkar eina sanna von (A-ha)
Stendur með okkur í streðinu
vakir yfir oss lon og don.
|
||||
11. |
||||
Þett’ er minn haus, ég vil haf’ann á mér.
Þú færð hann ekki, sama hvað þú segir.
Þú ræður mér ekki, þó að þú sért stærri en ég.
Ég á mig sjálf. Reynd’ að sætta þig við það!
Enginn ræður yfir mér! Enginn ræður yfir mér!
Enginn ræður yfir mér! Allir mega eiga sjálfan sig.
Ég á hugsanir. Ég á tilfinningar.
Ég fæ hugmyndir. Ég finn gleði’ í hjarta.
Þú ert glötuð drottning. Veldið þitt er vonlaust.
Slepptu takinu. Láttu hjartað ráða!
Enginn ræður yfir mér! Enginn ræður yfir mér!
Enginn ræður yfir mér! Allir mega eiga...
Enginn ræður yfir mér! Enginn ræður yfir mér!
Enginn ræður yfir mér! Allir mega eiga sjálfan sig, allir mega eiga sjálfan sig!
Við erum öll klikkuð! – Það er allt í lagi!
Við erum meingölluð! – Það er í góðu lagi
Enginn er fullkominn! – Hverjum er ekki sama?!
Samt erum við stórkostleg! – Þokkalega!
Við eigum okkur sjálf! Hó! Hó!
Við ráðum okkur sjálf! Heyr! Heyr!
Hlýðum kalli hjartans! Búm-búm! Búm-búm!
Við erum frjáááááls! Jááááá!
Enginn ræður yfir mér! Enginn ræður yfir mér!
Enginn ræður yfir mér! Allir mega eiga sjálfan sig...
HJARTADROTTNINGIN: STOOOOOPP!!!
|
||||
12. |
Núna er núna
02:10
|
|||
Núna er ævintýrið búið
Núna er þessi saga öll
Núna það kemur aldrei aftur
Því núna er núna já núna er núna og núna er búið núna.
Manstu, er Lísa datt í holu
Manstu, hvað allt var upp í loft
Manstu, það gerðist margt svo skrýtið
en núna er núna já núna er núna og núna er búið núna... vúúú!
Núna, þið hittuð hana Lísu
Núna, þið þekkið Undraland
Núna, þið farið heim til ykkar
Núna er núna, já núna er núna og
núna er núna og núna er núna
og núna er núna og núna er núna
og núna er búið núna...
Núna er núna já núna er núna og núna er búið núna.
|
If you like Lísa í Undralandi, you may also like:
Bandcamp Daily your guide to the world of Bandcamp